Englafjárfestar

Englafjárfestar eru einstaklingar sem fjárfesta í upprennandi sprotafyrirtækjum á byrjunarstigi.

Þeir veita ekki aðeins fjármagn heldur einnig reynslu, tengslanet og ráðgjöf sem getur skipt sköpum fyrir vöxt og velgengni frumkvöðla. Englafjárfestingar eru lykilþáttur í að knýja nýsköpun áfram og styðja við framtíðarfyrirtæki.

Hvað þýðir að vera englafjárfestir?

Englafjárfestar gegna lykilhlutverki í nýsköpunarvistkerfinu. Þeir fjárfesta snemma í frumkvöðlum og sprotafyrirtækjum sem eiga möguleika á vexti, en eru oft ekki komin með aðgang að hefðbundnu fjármagni eins og bankalánum eða stórum sjóðum.

Hlutverk þeirra nær þó langt út fyrir fjárhagslegan stuðning

Englafjárfestar:

  • Deila þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu

  • Tengja frumkvöðla við rétta aðila og netverka

  • Veita leiðsögn og styðja við stefnumótun

  • Hjálpa til við að byggja upp fyrirtæki sem eru tilbúin til vaxtar og frekari fjármögnunar

Þeir eru oft fyrstu trúnaðarmenn frumkvöðla og styðja við bakið á hugmyndum sem annars gætu ekki orðið að veruleika. Með því að taka þátt í áhættusömum en spennandi verkefnum, skapa englafjárfestar verðmæti – ekki aðeins fyrir sjálfa sig, heldur einnig fyrir samfélagið og efnahagslífið í heild.

Hvernig virka englafjárfestingar?

Englafjárfestingar eiga sér oft stað á fyrstu stigum sprotafyrirtækis – þegar hugmyndin er til staðar og frumkvöðullinn er að hefja vegferðina. Hér eru helstu atriðin:

Fjárfestir hittir frumkvöðul

Frumkvöðull kynnir hugmyndina sína og framtíðarsýn, oft í gegnum „pitch“ eða viðburði sem samtök eins og IceBAN halda.

Mat og greining

Englafjárfestir skoðar viðskiptahugmyndina, teymið, markaðinn og áhættuna. Hann metur mögulegan arð og áhrif.

Fjárfesting

Ef trú er á verkefnið fjárfestir englafjárfestir með því að kaupa hlut í fyrirtækinu. Fjárhæðir eru oft á bilinu 1–20 milljónir kr. en geta verið mismunandi eftir verkefnum.

Stuðningur og leiðsögn

Englafjárfestir veitir ráðgjöf, opnar dyr að tengslaneti og hjálpar frumkvöðlum að taka næstu skref – allt frá vöruþróun til vöxts og frekari fjármögnunar.

Útganga og ávöxtun

Ef fyrirtækið vex og gengur vel, getur fjárfestirinn selt sinn hlut síðar meir – til dæmis til stærri fjárfesta eða í gegnum yfirtöku. Markmiðið er að fá arð á fjárfestinguna, oft margfaldan þann upphaflega.

Ég er ekki engill en langar að læra

Skráðu þig og komdu á kynningarviðburð þar sem við förum yfir hvernig þú getur fengið tækifæri til að móta framtíðina og styðja við nýsköpun á Íslandi.

Við köllum eftir íslenskum englafjárfestum

Við köllum eftir íslenskum englafjárfestum

Komdu með á næsta félagsviðburð