Sprotar

Sprotafyrirtæki eru ung og nýsköpunardrifin fyrirtæki sem eru að þróa nýjar hugmyndir, vörur eða þjónustu.

Þau eru oft á frumstigi og vinna að því að koma lausnum sínum á markað. Sprotafyrirtæki eru drifin áfram af frumkvöðlum, metnaði og skapandi hugsun, og gegna lykilhlutverki í að knýja fram tæknibreytingar og hagvöxt.

Þjónusta við sprota

IceBAN veitir frumkvöðlum öfluga þjónustu sem eykur líkur á aðgengi að fjármögnun, tengslaneti og þekkingu. Markmið okkar er að hjálpa frumkvöðlum að vaxa – frá hugmynd að veruleika.

Hvað býður IceBAN frumkvöðlum upp á?

Aðgang að neti englafjárfesta: Frumkvöðlar skrá sig í kerfi IceBAN sem mátar verkefnið þeirra við áhugasama fjárfesta.

Kynningartækifæri: Möguleiki á að taka þátt í viðburðum og pitchum þar sem fjárfestar og frumkvöðlar hittast.

Leiðsögn og stuðningur: IceBAN veitir ráðgjöf og endurgjöf á kynningar, fjárfestingargögn og hvernig best er að stilla verkefnið upp.

Fræðsla og tengslanet: Aðgangur að viðburðum, fræðslu og samfélagi frumkvöðla og fjárfesta víða um land.

Hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða ert komin/n með starfandi vöru, þá getur IceBAN hjálpað þér að tengjast réttum fjárfestum og að taka næstu skref í vexti fyrirtækisins

Ferilinn við að sækja um

Frumkvöðlar sem vilja kynna hugmyndir sínar fyrir englafjárfestum skrá sig beint í rafrænt umsóknarkerfi IceBAN. Kerfið safnar upplýsingum um verkefnið, teymið og markmið, og mátar frumkvöðla við áhugasama fjárfesta með hliðsjón af áhugasviði og reynslu.

Skráning í kerfið

Frumkvöðlar fylla út stutt eyðublað þar sem þeir kynna verkefnið sitt, vöru eða þjónustu og framtíðarsýn.

Greining og pöruð tenging

Kerfið mátar frumkvöðla við þá englafjárfesta sem hafa áhuga á verkefnum í svipuðum geirum eða vaxtarstigi. Þetta eykur líkur á markvissum tengingum og árangursríkum samskiptum.

Kynningartækifæri

Þeir sem vekja áhuga fá tækifæri til að kynna hugmyndir sínar á viðburðum IceBAN eða í beinum fundum með fjárfestum sem sýna áhuga.

Eftirfylgni og næstu skref

Ef samhljómur næst milli frumkvöðuls og fjárfestis getur farið af stað ferli fjárfestingar, samninga og samstarfs.

Ertu með hugmynd?

Hvort sem þú ert að stíga fyrstu skrefin eða ert komin/n með starfandi vöru, þá getur IceBAN hjálpað þér að tengjast réttum fjárfestum og að taka næstu skref í vexti fyrirtækisins.

Við köllum eftir íslenskum englafjárfestum

Við köllum eftir íslenskum englafjárfestum

Komdu með á næsta félagsviðburð